Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í mars 2015 er 426,4 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 1,02% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 395,4 stig og hækkaði um 1,02% frá febrúar. Þetta kemur fram í frétt frá Hagstofu Íslands.
„Vetrarútsölum er lokið og hækkaði verð á fötum og skóm um 9,1% (áhrif á vísitöluna 0,39%). Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð leiga) hækkaði um 1,6% (0,24%) og verð á bensíni og olíum hækkaði um 5,8% (0,20%). Flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 8,8% (0,11%),“ segir í frétt Hagstofu Íslands.
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,6 prósent og vísitala án húsnæðis hefur lækkað um 0,1 prósent, en þetta er skörp hækkun á tiltölulega skömmum tíma. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um eitt prósent sem jafngildir 3,9 prósent verðbólgu á ári.