Verðbólgan byrjuð að lækka – Mælist 9,7 prósent

Tólf mánaða verðbólga lækkaði milli mánaða úr 9,9 í 9,7 prósent. Þetta er í fyrsta sinn frá sumrinu 2021 sem verðbólgan lækkar milli mánaða.

ruv-31_15377256743_o.jpg
Auglýsing

Síð­ast­liðna tólf mán­uði hefur vísi­tala neyslu­verðs hækkað um 9,7 pró­sent. Það þýðir að verð­bólgan nú er minni en hún mæld­ist í júlí, þegar hún mæld­ist 9,9 pró­sent. Þetta kemur fram í nýrri til­kynn­ingu frá Hag­stofu Íslands um vísi­tölu neyslu­verðs sem birt var í dag.

Þetta er í fyrsta sinn síðan í júní 2021 sem tólf mán­aða verð­bólga lækkar milli mán­aða. 

Vísi­talan hækk­aði þó í ágúst, alls um 0,29 pró­sent frá fyrra mán­uði. Sum­ar­út­sölum er að ljúka og hækk­aði verð á fötum og skóm um 3,5 pró­sent og verð á hús­gögnum og heim­il­is­bún­aði hækk­aði um 6,4 pró­sent.

Kostn­aður vegna búsetu í eigin hús­næði hækk­aði um 0,9 pró­sent verð á flug­far­gjöldum til útlanda lækk­aði um 8,7 pró­sent og verð á bens­íni og olíum lækk­aði um 3,9 pró­sent.

Auglýsing
Seðlabanki Íslands hefur hækkað stýri­vexti nokkuð skarpt und­an­farið til að reyna að vinna gegn verð­bólgu. Þeir eru nú komnir í 5,5 pró­sent en voru 0,75 pró­sent í maí í fyrra. Í Pen­inga­málum Seðla­bank­ans, sem birt voru í síð­ustu viku, kom­fram að bank­inn reiknar með því að verð­bólgan verði komin í 10,8 pró­­sent fyrir árs­­lok.

Verð­­bólg­u­horfur fari auk þess versn­andi vegna tölu­vert kröft­ugri vaxtar á inn­­­lendri eft­ir­­spurn en búist var við í vor og hæg­­ari hjöðnun á verð­hækk­­unum á hús­næð­is­verði, en það er enn að hækka þótt hægt hafi á. Þar skipta miklar vaxta­hækk­­­anir Seðla­­bank­ans og þrengri lána­skil­yrði sem hann hefur sett lyk­il­­máli. Það er erf­ið­­ara, og minna eft­ir­­sókn­­ar­vert, að taka hús­næð­is­lán nú en fyrir nokkrum mán­uðum síð­­­an.

Helsti drif­­kraftur verð­­bólg­unnar hefur nefn­i­­lega verið gríð­­ar­­leg hækkun á hús­næð­is­verði, en á höf­uð­­borg­­ar­­svæð­inu hefur það hækkað um 25,5 pró­­sent á einu ári. 

Það er þó margt annað sem hefur hækk­­að. Verð á almennri þjón­­ustu hefur hækkað um 8,5 pró­­sent á einu ári, og vega miklar hækk­­­anir á flug­­­gjöldum þar þyngst. Inn­­­lendar vörur hafa hækkað um 8,7 pró­­sent á sama tíma, en þar vegur verð­hækkun á mat­vöru þyngst. Elds­­neyt­is­verð hækk­­aði líka skarpt á fyrri hluta árs­ins, eða alls um 41 pró­­sent milli ára. Það hefur þó tekið að lækka und­an­farnar vik­­ur. Það hefur hrá­vöru­verð á alþjóða­­mörk­uðum líka gert. 

Á sama tíma hækk­­aði launa­­vísi­talan um 8,4 pró­­sent, eða minna en ofan­­greindir útgjalda­lið­­ir. Á manna­­máli þýðir það að ef fólk ætl­­aði að eyða því sama, eða meira, og það gerði fyrir ári þá þarf það annað hvort að ganga á sparnað eða fá eyðsl­una lán­aða.  

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent