Verðbólgan upp í 9,6 prósent – Einungis tvívegis mælst meiri frá 2009

Verðbólga jókst milli mánaða og tólf mánaða verðbólga hafi mælist nú 0,3 prósentustigum meiri en fyrir mánuði. Matur og flugfargjöld hækkuðu í mánuðinum.

Verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands er 2,5 prósent. Verðbólgan er nú 7,1 prósentustigi yfir því markmiði. Hún hefur ekki verið undir markmiðinu síðan í apríl 2020. Ásgeir Jónsson er seðlabankastjóri.
Verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands er 2,5 prósent. Verðbólgan er nú 7,1 prósentustigi yfir því markmiði. Hún hefur ekki verið undir markmiðinu síðan í apríl 2020. Ásgeir Jónsson er seðlabankastjóri.
Auglýsing

Vísi­tala neyslu­verðs hækk­­aði um 0,66 pró­­sent milli mán­aða. Tólf mán­aða verð­­bólga mælist nú 9,6 pró­­sent en hún mæld­ist 9,3 pró­­sent í síð­­asta mán­uði. Hún hefur ein­ungis tví­vegis mælst meiri en nú frá haust­mán­uðum 2009, en það var í júlí og ágúst í sumar þegar hún mæld­ist 9,7 til 9,9 pró­sent. 

Tólf mán­aða verð­­bólga var 5,7 pró­­sent í jan­ú­ar og hefur því auk­ist veru­lega það sem af er ári.  

Sam­­kvæmt til­­kynn­ingu Hag­­stofu Íslands voru helstu ástæður þess að vísi­talan hækk­­aði á milli októ­ber og nóv­­em­ber þær að verð á mat­vörum hækk­­aði um 0,6 pró­­sent og flug­far­gjöld til útlanda hækk­uðu um 19,4 pró­sent. 

Stýri­vextir hækk­­aðir tíu sinnum í röð

Seðla­­­banki Íslands hækk­­­aði stýri­vexti sína í í lok nóv­em­ber upp í sex pró­­­sent. Þetta var í tíunda sinn í röð sem Seðla­­­bank­inn hækk­­­aði vexti, en þeir voru 0,75 pró­­­sent í maí í fyrra. Fyrir vikið eru íbúða­lána­vextir hærri en þeir hafa verið í tólf ár, eða frá árinu 2010, skömmu eftir banka­hrunið þegar enn var verið að end­­­­ur­reisa föllnu bank­ana og íslenskt atvinn­u­líf. 

Auglýsing
Í yfir­­­lýs­ingu pen­inga­­­stefn­u­­­nefndar sagði að verð­­­bólga hafi auk­ist á ný í októ­ber og mælst 9,4 pró­­­sent, verð­hækk­­­­­anir væru á breiðum grunni og und­ir­liggj­andi verð­­­bólga hefði áfram auk­ist. Þá var gert ráð fyrir því að verð­­­bólgan verði 9,4 pró­­­sent að með­­­al­tali núna á síð­­­asta árs­fjórð­ung­i. 

Ásgeir Jóns­­son seðla­­banka­­stjóri lét svo hafa eftir sér í kjöl­far ákvörð­un­­ar­innar að mikil aukn­ing í einka­­neyslu væri að koma niður á gengi krón­unn­­ar. Það auki inn­­­flutta verð­­bólgu. „Þegar þjóðin er að fara á Tene, það kost­ar gjald­eyr­i,“ sagði Ásgeir og bætti svo við að Seðla­­bank­inn gæti„ ekki fjár­­­­­magnað Tene-­­ferðir úr forð­an­­um.“

Mikil áhrif á kjara­við­ræður

Ákvörðun um stýri­­vaxta­hækkun hafði mikil og nei­­kvæð áhrif á yfir­­stand­andi kjara­við­ræð­­ur. hún leiddi meðal ann­­ars til þess að VR, stærsta stétt­­ar­­fé­lag lands­ins, sleit við­ræðum um tíma og lagt var upp í þá veg­ferð að reyna að ná skamm­­tíma­­samn­ing­um, sem gilda út jan­úar 2024, í stað þess að semja til lengri tíma. 

Til­­­gangur þess átti að vera að skapa betri aðstæður til samn­ings­­gerðar þegar verð­­bólgan hefur hjaðn­­að, en spár Seðla­­bank­ans gera ráð fyrir því að hún verði komin niður í 4,5 pró­­sent á síð­­­asta árs­fjórð­ungi næsta árs.

Hún verður þó enn langt fram mark­miði Seðla­­bank­ans, sem er 2,5 pró­­sent verð­­bólga.

Skamm­tíma­samn­ingar hafa nú þegar náðst við 80 pró­sent starfs­fólks á almennum vinnu­mark­aði. Þeir voru sam­þykktir með yfir­gnæf­andi meiri­hluta í atkvæða­greiðslum nú í des­em­ber. Enn er ósamið við fjórð­ung þeirra sem starfa á almennum mark­aði, og þar munar mestu um félags­menn efl­ing­ar, og starfs­menn í opin­bera geir­an­um. 

Gríð­ar­leg aukn­ing á greiðslu­byrði

Stýri­­vaxta­hækk­­­anir og verð­­bólga hafa allskyns áhrif á dag­­legt líf fólks. Verð á nær öllum nauð­­synja­vörum hækkar vegna verð­­bólg­unnar og afborg­­anir af íbúða­lánum stór­aukast hjá mörgum sam­hliða vaxta­hækk­­un­­um.

Kjarn­inn greindi frá því í nóv­em­ber að greiðslu­­­byrði óverð­­­tryggðs íbúða­láns með breyt­i­­­legum vöxtum upp á 50 millj­­­ónir króna sé nú um 311.500 krón­­­ur, sam­­kvæmt grein­ingu Hús­næð­is- og mann­­virkja­­stofn­un­­ar. Í maí í fyrra, áður en stýri­­­vaxta­hækkun Seðla­­­banka Íslands hóf­st, var greiðslu­­­byrði láns að sömu upp­­­hæð 188.500 krón­­­ur. Hún hefur því hækkað um 123 þús­und krónur á mán­uði eða tæp­­­lega 1,5 millj­­­ónir króna á ári. Greiðslu­­­byrðin hefur auk­ist um 65 pró­­­sent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent