Verðmæti útfluttra sjávarafurða til Rússlands áætlað 37 milljarðar í ár

kjarninn_makrill.jpg
Auglýsing

Í minn­is­blaði sem Sam­tök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi lögðu fram á fundi með utan­rík­is­mála­nefnd Alþingis á mánu­dag kemur fram að áætlað útflutn­ings­verð­mæti sjáv­ar­af­urða til Rúss­lands í ár nemi 37 millj­örðum króna. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu.

Það eru meiri verð­mæti en áður var talið og mikil og tölu­verð aukn­ing frá árinu 2014, þegar verð­mæti útflutn­ings til Rúss­lands var um 29 millj­arðar króna, eða fimm pró­sent ­út­flutn­ings­verð­mæta Íslands á því ári.

Kjarn­inn greindi frá því í gær að Rússar hafi nú tekið ákvörð­unn um að bæta löndum á lista sinn yfir lönd þaðan sem bannað er að flytja inn mat­vöru. Þetta til­kynntu þeir í gær. Aðstoð­ar­for­sæt­is­ráð­herra Rúss­lands, Arkady Dvor­kovít­sj, nefndi ekki löndin sem bætt verða á list­ann en sagði ákvörðun um það verða tekna í nán­ustu fram­tíð.

Auglýsing

Inter­fax-frétta­stofan sagði sjö lönd bæt­ast á list­ann sem Rússar gerðu í ágúst í fyrra. Frá þessum löndum er Rússum bannað að flytja inn mat­vöru, þar með talið fisk og fiski­af­urð­ir.

Sjö lönd hafa ákveðið að standa með Evr­ópu­sam­band­inu, Banda­ríkj­unum og Kanada í hertum við­skipta­þving­unum gegn Rúss­landi frá því að þær voru settar á í upp­hafi síð­asta árs. Auk Íslands eru það Úkra­ína, Svart­fjalla­land, Alban­ía, Liechten­stein, Georgía og Nor­eg­ur. Af þessum löndum er aðeins Nor­egur nú þegar á bann­lista Rússa.

Í Morg­un­blað­inu segir að allar líkur séu nú taldar á því að Rússar muni bæta Íslandi á lista yfir þau ríki sem þeir beita við­skipta­banni. Ekki sé þó víst hvort bannið muni hafa áhrif á mak­ríl­sölu Íslend­inga til Rúss­lands. Blaðið vitnar í frétta­stof­una Tass sem hefur eftir starfs­manni rúss­neska land­bún­að­ar­ráðu­neyt­is­ins að enn sé óljóst hvort við­skipta­bann við Ísland nái yfir "ákveðnar fisk­teg­und­ir".

Sam­kvæmt bráða­birgða­nið­ur­stöðum Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar er heild­ar­magn mak­ríls meira en nokkru sinni fyrr á Íslands­mið­um, eða frá því að athug­anir hófust árið 2009. Frá þessu var greint í gær.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None