Verðtrygging ekki almennt í andstöðu við tilskipun

EFTA-court-logo2.jpg
Auglýsing

Verð­trygg­ing er almennt ekki í and­stöðu við til­skipun Evr­ópu­sam­bands­ins. Þetta kemur fram í ráð­gef­andi áliti EFTA-­dóm­stóls­ins í máli Gunn­ars V. Eng­ils­berts­sonar gegn Íslands­banka. Sam­kvæmt álit­inu er því ekki bannað að setja skil­mála um verð­trygg­ingu í samn­inga. Lands­dóm­stól­um, í þessu til­felli Hæsta­rétti Íslands, er eft­ir­látið að meta hvort samn­ings­skilálar upp­fylli skýr­leika­skil­yrði til­skip­an­inn­ar.

Hægt er að lesa álitið hér.

Málið er annað þeirra tveggja mála sem Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hefur vísað til EFTA-­dóm­stóls­ins er varða verð­trygg­inu. Í þessu máli, sem var tekið fyrir í apríl 2014, var tek­ist á um hvort verð­trygg­ing sé ósann­gjarn skil­máli í skiln­ingi til­skip­unar sem inn­leidd var í íslenska lög­gjöf frá Evr­ópu­sam­band­inu. Í mál­inu beindi hér­aðs­dómur fimm spurn­ingum til EFTA-­dóm­stóls­ins og óskaði eftir ráð­gef­andi áliti.

Auglýsing

Innan stjórn­kerf­is­ins og lög­manna­­stétt­ar­innar var það nokkuð almenn skoðun að það yrði ólík­legt að EFTA-­dóm­stóll­inn myndi segja í áliti sínu að verð­trygg­ingin sé ósann­gjörn sem skil­máli. Það varð nið­ur­stað­an. Þar er vísað í að sam­kvæmt dóma­fram­kvæmd Evr­ópu­dóm­stóls­ins geti samn­ings­skil­máli sem eigi sér stoð í lands­rétti ekki verið ósann­gjarn í eðli sínu. Og verð­trygg­ing á sér stoð í íslenskum lands­rétti. Í áliti EFTA-­dóm­stóls­ins kemur fram að ekki er óheim­ilt að setja inn skil­mála um verð­trygg­ingu í lána­samn­inga. Íslenskum dóm­stólum er hins vegar eft­ir­látið að meta hvort samn­ings­skil­málar í hverju máli fyrir sig séu nægi­lega skýrir til að upp­fylla skýr­leika­skil­yrði til­skip­un­ar­inn­ar.

 Stóru spurn­ing­unni enn ósvarað



EFTA-­dóm­stóll­inn á enn eftir að skila áliti sínu í hinu mál­inu sem varðar verð­trygg­ingu. Það var flutt í júní. Í því var sömu fimm spurn­ing­unum beint til EFTA-­dóm­stóls­ins en einni bætt við. Hún snýst til­skipun um hlut­falls­tölu kostn­að­ar. Á manna­máli þýðir það að þegar ein­hver er að taka lán þá á að koma fram hver kostn­aður vegna láns­ins verð­ur. Í Evr­ópu myndi slík tala sam­an­standa af vöxtum og lán­töku­gjaldi. Þegar íslensku bank­arnir og Íbúða­lána­sjóður hafa verið að reikna þessa hlut­falls­tölu þá hefur verð­trygg­ingin verið und­an­skil­in, þrátt fyrir að hún hafi sann­ar­lega áhrif á það hver kostn­aður láns­ins verð­ur. Við útreikn­ingu kostn­aðar hefur ein­fald­lega bara verið miðað við að verð­bólgan sé núll pró­sent.

Þessi til­skipun var inn­leidd í íslensk lög árið 1994 og árið 2004 voru fast­eigna­lán felld undir hana. Þeir sem sækja málið vilja meina að frá þeim tíma hefði raun­kostn­aður vegna verð­trygg­ingar átt að koma fram í hlut­falls­töl­unni sem kynnt var lán­tak­end­um, en ekki að það yrði ein­ungis miðað við að verð­bólgan sé núll pró­sent. Bæði Eft­ir­lits­stofnun EFTA, ESA, og Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins hafa tekið undir þessa rök­semda­færslu.

Rökin fyrir því að miða við enga verð­bólgu við útreikn­ing á kostnað lána eru þau að þannig sé staðan skýr­ust. Verð­bólga er þekkt fyr­ir­brigði á Íslandi og hún hefur sveifl­ast mikið í gegnum tíð­ina. Þeir sem hafa þessa skoðun segja þannig ómögu­legt að spá fyrir um hana og betra sé að gera lán­tak­anda ein­fald­lega grein fyrir því að verð­bólga muni hafa áhrif á lán­ið, í stað þess að giska á hver hún verður á láns­­tím­an­um. Eðli verð­trygg­ingar er auk þess þannig að laun og virði hús­næðis hækkar iðu­lega sam­hliða skuldum yfir lengri tíma vegna verð­bólgu. Því sýni 0 pró­sent rétt­ustu stöð­una. Þetta eru á meðal rök­semda lög­manna íslenska rík­is­ins í mál­inu.

Lögum um neyt­enda­lán var breytt á Íslandi í fyrra. Sam­kvæmt nýju lög­unum á hlut­falls­legur kostn­aður verð­tryggðra lána ekki að miða lengur við núll pró­sent heldur árs­verð­bólgu síð­ustu 12 mán­uði. Þessi breyt­ing veldur mála­rekstri íslenska rík­is­ins tölu­verðum erf­ið­leik­um, enda er breyt­ingin í and­stöðu við málarök og hags­muni íslenska rík­is­ins.

Það sem aðskilur þessa spurn­ingu frá hinum fimm er sú að nið­ur­staða EFTA-­dóm­stóls­ins verður alltaf annað hvort: já, þið megið und­an­skilja verð­bætur við útreikn­ing hlut­falls­tölu, eða nei, þið megið það ekki.



Ef nið­ur­staðan verður sú að ekki megi miða við núll pró­sent við útreikn­ing henn­ar, líkt og íslenska ríkið virð­ist raunar hafa þegar ákveðið með því að breyta lögum þannig að það er ekki lengur gert, þá mun Hæsti­réttur Íslands þurfa að taka afstöðu til þess, sam­kvæmt gömlu lög­unum um neyt­enda­lán. Nánar til­tekið 14. grein þeirra.



Hæsti­réttur hefur þá tvo kosti: ann­að­hvort að horfa til fyrstu máls­greinar 14. greinar lag­anna eða þriðju máls­greinar henn­ar. Ef Hæsti­réttur horfir til fyrstu máls­greinar verða öll verð­tryggð neyt­enda­lán ólög­mæt. Ef Hæsti­réttur horfir til þriðju máls­greinar verða þau það ekki.



 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None