Forsvarsmenn samninganefnda VR, LÍV, Flóabandalagsins, StéttVest og Samtaka atvinnulífsins hafa náð samkomulagi um að fresta verkfallsaðgerðum sem áttu að hefjast næsta fimmtudag, þann 28. maí. Aðgerðunum er frestað um fimm sólarhringa.
Í tilkynningu sem VR sendi frá sér vegna þessa segir: "Ekki verður upplýst um einstaka efnisþætti viðræðna aðila fyrr en gengið hefur verið frá drögum að samningi sem lagðar verði fyrir samninganefndir félaganna. Stefnt er að því að niðurstaða liggi fyrir eigi síðar en 28. maí næstkomandi."
Samningaviðræðum Samtaka atvinnulífsins (SA) við VR og Flóabandalagið hjá ríkissáttarsemjara var slitið síðastliðinn þriðjudag.
Ef ekki semst um lausn á kjaradeilum á vinnumarkaði munu tugþúsundir fara í allsherjarverkfall 6. júní næstkomandi.