Viðskiptaráð vísar gagnrýni BSRB á bug

frostiolafs.jpg
Auglýsing

Við­skipta­ráð Íslands vísar gagn­rýni BSRB á bug, þegar kemur að úttekt á þróun opin­berra starf. Eins og greint var frá hér á vef­síðu Kjarn­ans í morgun þá gagn­rýnir BSRB Við­skipta­ráð harð­lega í til­kynn­ingu fyrir að bera á torg rangar tölur um þróun mál þegar kemur að opin­berum störf­um. BSRB segir opin­berum störfum hafa fækkað um tæp­lega 11 pró­sent frá árinu 2008, og að opin­berum starfs­mönnum hafi fjölgað um 5,6 pró­sent á meðan fjöldi starfs­manna á almennum vinnu­mark­aði hafi auk­ist um 11,8 pró­sent.

Við­skipta­ráð hafnar þessum atriðum sem fram koma í til­kynn­ingu BSRB og segir að Við­skipta­ráð hafa stuðst við réttar tölur í sínu mati. Í til­kynn­ingu frá Við­skipta­ráði segir meðal ann­ars orð­rétt: „Stærsta mis­ræmið í tölum Við­skipta­ráðs og BSRB má finna í fjölda rík­is­starfs­manna um síð­ustu alda­mót. Í tölum BSRB er full­yrt að stöðu­gildi hjá rík­inu hafi verið 15.700 árið 2000 og vísað er til upp­lýs­inga frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu án þess að beinnar heim­ildar sé get­ið. Þessi full­yrð­ing stang­ast á við opin­berar upp­lýs­ingar frá sama ráðu­neyti. Í svari fjár­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn á Alþingi þann 19. nóv­em­ber 2009 kemur fram að fjöldi stöðu­gilda hjá rík­inu hafi verið 14.000 árið 2000. Við­skipta­ráð not­að­ist við hinar opin­beru töl­ur, en ekki kemur fram í til­kynn­ingu BSRB hvers vegna litið var fram­hjá þeim. Þá kemur fram í til­kynn­ingu BSRB að störfum hjá rík­inu hafi fækkað um 10,6% frá árinu 2008 og því haldið fram að full­yrð­ingar Við­skipta­ráðs um ein­ungis 3% fækkun rík­is­starfs­manna á þessum tíma séu rang­ar. Hér yfir­sést BSRB tvennt. Í fyrsta lagi var stór mála­flokk­ur, mál­efni fatl­aðra, fluttur frá rík­inu yfir til sveit­ar­fé­laga árið 2011 og færð­ust þá 905 stöðu­gildi á milli þess­ara aðila. Ef bera á saman tölur fyrir og eftir þessa til­færslu ber að leið­rétta fyrir henni. Sé það gert hverfur um helm­ingur þeirrar fækk­unar stöðu­gilda sem BSRB full­yrðir að átt sér hafi stað hjá rík­inu á þessu tíma­bili.

Í öðru lagi þá mið­aði Við­skipta­ráð í útreikn­ingum sínum við árið 2009, þegar efna­hags­á­ætlun Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins og síð­ustu rík­is­stjórnar hóf­st, en ekki árið 2008 líkt og BSRB virð­ist hafa talið. Að teknu til­liti til til­færslu mál­efna fatl­aðra hefur rík­is­starfs­mönnum fækkað um 3% frá árinu 2009, líkt og áður kom fram hjá Við­skipta­ráði, en rík­is­starfs­mönnum fækkað um tæp 5% frá árinu 2008 en ekki 10,6% eins og kom fram í til­kynn­ingu BSR­B.“

Auglýsing

Í til­kynn­ing­unni frá Við­skipta­ráði er enn fremur hamrað á því að fjölgun starfa hjá hinu opin­bera hafi verið veru­lega umfram fjölgun starfa á almennum vinnu­mark­aði, þvert á það sem fram kemur í til­kynn­ing­unni frá BSRB. „Ef litið er til fjölda opin­berra starfs­manna í heild, bæði hjá ríki og sveit­ar­fé­lög­um, má sjá að þeim hefur fjölgað um 29% frá alda­mótum (úr 28.700 stöðu­gildum árið 2000 í 36.880 árið 2014 sam­kvæmt fjár­mála­ráðu­neyt­inu og Sam­bandi íslenskra sveit­ar­fé­laga).“

Til­kynn­ing­una frá Við­skipta­ráði  má lesa í heild sinni hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None