Vildi kaupa í Símanum á hærra gengi í maí

S--minn_03.jpg
Auglýsing

Síð­ast­liðið vor fal­að­ist líf­eyr­is­sjóður eftir því að kaupa hluta­bréf í Sím­anum á geng­inu 3,45 af þeim hlut­höfum sem eign­uð­ust hluta­bréf í Sím­anum í kjöl­far fjár­hags­legrar end­ur­skipu­lagn­ingar fyr­ir­tæk­is­ins árið 2013. Til­boð bár­ust þessum hlut­höfum í maí frá ótil­greindum líf­eyr­is­sjóði fyrir milli­göngu MP banka, rúmum þremur mán­uðum áður en Arion banki seldi hópi stjórn­enda Sím­ans og með­fjár­festum fimm pró­senta hlut á geng­inu 2,5. Til­boðið í maí var þannig 38 pró­sent hærra en sölu­verðið til stjórn­enda og fjár­fest­anna í ágúst.

Morg­un­blaðið greinir frá mál­inu í dag og hefur upp­lýs­ing­arnar eftir heim­ildum. Í umfjöllun blaðs­ins segir að ólga sé innan líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins vegna útboðs Arion banka á Síma­bréf­um. Margir séu ósáttir við að hafa ekki átt tæki­færi á að kaupa í Sím­anum fyrir útboð­ið, en í aðdrag­anda þess seldi Arion banki fimm pró­senta hlut til stjórn­enda og með­fjár­festa þeirra ann­ars vegar og vild­ar­við­skipta­vinum sínum fimm pró­senta hlut einnig. Fram kemur í frétt Morg­un­blaðs­ins að margir líf­eyr­is­sjóð­anna séu með fjár­muni í stýr­ingu hjá eigna­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­inu Stefni, dótt­ur­fé­lagi Arion  banka, og á vett­vangi stjórna sjóð­anna hafi komið til tals að færa við­skipti sín annað í mót­mæla­skyni. Óánægja sjóð­anna er rakin til útboðs Sím­ans og fyrri útboða.

Ver sölu­ferlið



Í ágúst síð­ast­liðnum var til­kynnt um ­sölu Arion banka á fimm pró­senta hlut í Sím­anum til Orra Hauks­son­ar, for­stjóra félags­ins, ann­arra fram­kvæmda­stjóra þess og inn­lendra og erlendra fjár­festa. Kaup­gengi var 2,5. Þegar leið að útboði á 21 pró­senta hlut, sem fram fór í síð­ustu viku, bauð bank­inn síðan vild­ar­við­skipta­vinum eign­ar­stýr­ing­ar­þjón­ustu bank­ans að kaupa sam­tals fimm pró­senta hlut á geng­inu 2,8 krónur á hlut. Með­al­gengi í útboð­inu var síðan 3,3 krónur á hlut.

Arion banki hefur verið gagn­rýndur fyrir hvernig staðið var að söl­unni. Greint var frá því í gær að Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, hafi sent Banka­sýslu rík­is­ins spurn­ing­ar­lista í níu liðum og meðal ann­ars spurt hvort salan hafi mögu­lega falið í sér mark­aðs­mis­notk­un.

Auglýsing

Hall­dór Bjarkar Lúð­vígs­son, fram­kvæmda­stjóri fjár­fest­inga­banka­sviðs Arion banka, tjáði sig um sölu­ferlið í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í gær og sagði gagn­rýni á það vera „eftirá­speki“. Ekki hafi verið hægt að gefa sér nið­ur­stöðu útboðs­ins fyr­ir­fram. Hann benti meðal ann­ars á að báðir hóp­arnir sem keyptu fyrir útboðið séu bundnir sölu­höml­um, stjórn­endur og með­fjár­festar til árs­byrj­unar 2017 og vild­ar­við­skipta­vinir í þrjá mán­uði eftir skrán­ingu. Auð­velt sé að gagn­rýna bank­ann fyrir að hafa selt hluti á gengi sem var lægra en útboðs­gengi en þær upp­lýs­ingar hafi ekki legið fyrir í upp­hafi ferl­is­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None