Varaþingmaður og fimm þingmenn Vinstri grænna hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar um skipun starfshóps um sanngirnisbætur vegna aðgerða vegna ódæmigerðra kyneinkenna.
Fyrsti flutningsmaður tillögunnar er Daníel E. Arnarsson, varaþingmaður Vinstri grænna og með honum eru Bjarni Jónsson, Jódís Skúladóttir, Steinunn Þóra Árnadóttir, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir og Orri Páll Jóhannsson.
Alþingi myndi þá, ef tillagan verður samþykkt, fela forsætisráðherra að skipa starfshóp sem tæki til skoðunar umfang aðgerða vegna ódæmigerðra kyneinkenna sem gerðar voru áður en lög um kynrænt sjálfræði voru samþykkt. Jafnframt yrði kannað tilefni og grundvöllur þess að einstaklingum sem hlutu slíka meðferð verði bættur skaði sem kann að hafa hlotist af slíkum aðgerðum. Ráðherra myndi kynna Alþingi niðurstöður starfshópsins fyrir árslok 2022.
Þekkt að aðgerðir valda alvarlegum heilsufarsvanda sem fylgir fólki ævina á enda
Í greinargerð með tillögunni kemur fram að á allra síðustu árum hafi fjöldi mannréttindastofnana hvatt ríki heims til að banna með lagasetningu ónauðsynlegar og óafturkræfar aðgerðir á fólki sem fæðist með ódæmigerð kyneinkenni, án upplýsts samþykkis. Hér á landi eru í gildi lög um kynrænt sjálfræði sem banna slíkar aðgerðir.
„Vitundarvakning hefur átt sér stað um réttindi fólks sem fæðist með ódæmigerð kyneinkenni, vegna lagasetningar í anda þeirrar sem nefnd hefur verið en einnig vegna þess fjölda einstaklinga sem stigið hafa fram og sagt sögu sína á síðustu árum. Fjöldi fólks hefur þurft að þola varanlega skerðingu á lífsgæðum vegna óafturkræfra og ónauðsynlegra aðgerða sem framkvæmdar voru á árum áður.
Þekkt er að slíkar aðgerðir valda alvarlegum heilsufarsvanda sem fylgir fólki ævina á enda, til að mynda sársaukafullri öramyndun, beinþynningu og þvagrásarvandamálum. Víða um heim hafa greiningar á fósturvísum leitt til áhættusamra og óviðurkenndra lyfjameðferða á fósturstigi og langtímaheilsufarsáhrif af meðferðum sem einstaklingar með ódæmigerð kyneinkenni gangast undir eru lítt rannsökuð,“ segir í greinargerðinni.
Inngrip í líkamlega friðhelgi fólks hefur viðvarandi félagsleg og sálræn áhrif
Þá kemur fram í tillögunni að í sögum þeirra einstaklinga sem stigið hafa fram vegna slíkra aðgerða hafi ítrekað verið lýst þeim alvarlegu sálfræðilegu áhrifum sem þær kunna að hafa.
„Sýnt hefur verið að inngrip í líkamlega friðhelgi fólks sem fæðst hefur með ódæmigerð kyneinkenni hafa viðvarandi félagsleg og sálræn áhrif. Umræða um málefnið hefur lengi sætt félagslegri bannhelgi með tilheyrandi áhrifum á líf fólks auk félagslegrar einangrunar.
Þá eru einstaklingar sem fæðst hafa með ódæmigerð kyneinkenni í aukinni áhættu á brottfalli úr skóla, örðugleikum við að finna atvinnu vegna skorts á menntun, líkamlegra hamlana og félagslegrar skammar. Rannsóknir á jaðarsettum hópum hafa sýnt að líklegt er að einstaklingar innan þeirra verði fyrir félagslegri einangrun, þeir upplifi vanlíðan og þrói með sér geðræn vandamál. Tíðni þunglyndis, kvíða, sjálfskaða og sjálfsvíga er meiri meðal þeirra en almennt í samfélaginu.“
Bent er á í greinargerðinni að lögin um kynrænt sjálfræði séu ný af nálinni en þau tóku gildi fyrir tæpum þremur árum. „Mikilvægt er að varpa ljósi á umfang aðgerða fyrir lagasetninguna og miska sem kann að hafa hlotist af þeim, með tilliti til bæði andlegrar og líkamlegrar heilsu. Með skipun starfshóps um sanngirnisbætur til handa fólki sem fæðst hefur með ódæmigerð kyneinkenni og aðgerðir voru framkvæmdar á að þeim einstaklingum forspurðum, innan opinberra sjúkrastofnana, gefst stjórnvöldum tækifæri til þess að axla ábyrgð á sínum þætti í því misrétti sem fólk með ódæmigerð kyneinkenni hefur verið beitt,“ segir að lokum í greinargerð tillögunnar.