Rekstur vindmylla Landsvirkjunar fyrir ofan Búrfell, sem hafa verið í rekstri frá febrúar 2013, hefur verið umfram væntingar og nú hefur komið í ljós einstaklega góð nýting á fyrsta heila rekstrarári, langt yfir heimsmeðaltali. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Landsvirkjun.
Á heimsvísu er nýtnihlutfallið (einn helsti mælikvarði á hagkvæmni staðsetningar) að meðaltali um 28%. „Nýtnihlutfall vindmylla Landsvirkjunar var 44% á árinu 2014, sem var fyrsta heila dagatalsárið sem vindmyllur Landsvirkjunar voru í rekstri. Það er með því allra hæsta í heiminum og staðfestir að miklir möguleikar eru á frekari raforkuvinnslu úr vindorku á svæðinu. Rekstrarlegt tiltæki hefur verið tæplega 99% fyrir aðra vindmylluna og tiltæki hinnar um 97,5% árið 2014, sem sýnir hversu áreiðanlegar vindmyllurnar eru í rekstri,“ segir tilkynningu Landsvirkjunar.
Tvö svæði hafa verið til frekari skoðunar af hálfu Landsvirkjunar fyrir mögulega framtíðar uppbyggingu: Þjórsár- og Tungnaársvæðið, þar sem rannsóknarvindmyllurnar eru nú, og einnig virkjanasvæði Blöndustöðvar. Tillaga að áætlun mats á umhverfisáhrifum fyrir Búrfellslund liggur fyrir.
https://www.youtube.com/watch?v=18WBb7dRX7I