Vinna hafin við stofnun auðlindasjóðs

Bjarni Benediktsson sagðist í vor vilja stofna orkuauðlindasjóð sem yrði varasjóður þjóðarinnar.

bjarni
Auglýsing

Vinna er hafin við und­ir­bún­ing stofn­unar orku­auð­linda­sjóðs í fjár­mála­ráðu­neyt­inu. Þetta stað­fest­ir Teitur Björn Ein­ars­son, aðstoð­ar­maður Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra, í sam­tali við Kjarn­ann. Bjarni boð­aði að hann vildi stofna slíkan sjóð á árs­fundi Lands­virkj­unar síð­ast­liðið vor og nú væri rétti tím­inn til þess. 

„Ég tel tíma­bært að við Íslend­ingar stofnum sér­stakan orku­auð­linda­sjóð, ­full­veld­is­sjóð okkar Íslend­inga, sem í myndi renna allur beinn arður af nýt­ingu orku­auð­lind­anna. Með því að leggja inn í slíkan sjóð arð­greiðslur Lands­virkj­unar og ann­arra orku­fyr­ir­tækja rík­is­ins getum við hafið upp­bygg­ingu á vara­sjóð­i okkar Íslend­inga sem um leið væri hugs­aður sem stöð­ug­leika­sjóð­ur­ til að jafna út efna­hags­sveiflur í hag­kerf­in­u,“ sagði Bjarni á árs­fund­inum í maí síð­ast­liðn­um.

Vinnan sem fer fram í fjár­mála­ráðu­neyt­inu nú er aðeins und­ir­bún­ings­vinna að sögn Teits. Verið er að safna gögnum og fleira slíkt, en ekki er unn­ið að gerð til­lögu um það hvernig sjóð­ur­inn á að starfa. Leit­að verður eftir sam­starfi við aðra flokka um það, enda saðg­ist ­Bjarni í vor ætla að leita stuðn­ings hjá þing­inu fyrir stofn­un ­sjóðs af þessu tagi, og leið­togar allra stjórn­ar­and­stöðu­flokka tóku þá vel í hug­mynd­ina með fyr­ir­vara um útfærslu.

Auglýsing

Frétta­blað­ið ­leit­aði þá við­bragða leið­toga innan stjórn­ar­and­stöð­unnar við þess­ari hug­mynd Bjarna. Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­flokks­for­mað­ur­ P­írata, sagði þá að hug­myndin hljóm­aði áhuga­verð og að hún­ virt­ist byggja á norsku leið­inni, sem væri skyn­sam­legt.

„For­gangs­röðun á eyðslu pen­inga kemur oft of snemma, við þurfum fyrst að pæla í hvernig við öflum tekn­anna og þetta heyr­ist mér vera liður í því sem er jákvætt."

Árni Páll Árna­son, for­mað­ur­ ­Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, sagði slíkan sjóð lengi hafa verið á stefnu­skrá Sam­fylk­ing­ar­inn­ar. Flokk­ur­inn hafi talað fyrir því að ­sjóður yrði settur á fót þar sem auð­lindaarður væri ­sér­greindur og gjald­taka af auð­lindum sam­ræmd.

Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­maður Vinstri grænna, gerði þann fyr­ir­vara við hug­mynd­ina að Bjarni hafi ekki kynnt útfærslu sína á sjóðn­um. Hún sagð­ist hins vegar til­bú­in til sam­starfs enda hafi hug­myndin verið rædd í tíð síðust­u ­rík­is­stjórn­ar. Hún myndi vilja horfa á málið þeim augum að allar auð­lindir væru hugs­aðar sem ein heild.

Guð­mundur Stein­gríms­son, for­mað­ur­ ­Bjartrar fram­tíð­ar, sagði að flokkur hans væri algjör­lega til­bú­inn til sam­starfs. „Þetta hljómar eins og góð tón­list í mínum eyrum og það er ánægju­efni að þró­unin sé í þessa átt."

Margoft áður hefur verið lagt til að ein­hvers konar auð­linda­sjóður verði stofn­aður hér á landi, eins og Kjarn­inn fór yfir í frétta­skýr­ingu þegar Bjarni kom fram með hug­mynd­ina í maí síð­ast­liðn­um. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None