Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag, að tillögu forsætisráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, að settur verði á laggirnar vinnuhópur þvert á ráðuneyti sem skoði stöðu Grímseyjar í samvinnu við aðgerðahóp á vegum Akureyjarbæjar. Greint er frá þessu í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu í dag, en á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun var "Rekstrarvandi útgerða í Grímsey" eitt þeirra mála sem forsætisráðherra lagði fram.
„Það er brýnt að bregðast við þeirri erfiðu stöðu sem uppi hefur verði í Grímsey síðustu ár. Heimamenn óttast að ef ekkert verður að gert þá leggist útgerð í Grímsey af og jafnvel búseta í framhaldi þess. Ég trúi því ekki að nokkur vilji láta það gerast,“ er haft eftir forsætisráðherra, Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni í tilkynningu. Vinnuhópurinn á að ljúka störfum í síðasta lagi 1. nóvember næstkomandi.
Fram kemur að Akureyrarbær hafi sett upp aðgerðarhóp í apríl síðastliðnum sem falið var að fara yfir stöðu byggðarlagsins auk þeirra útgerðarfyrirtækja sem eru í brýnustum vanda auk annarra þátta sem gætu auðveldað búsetu í Grímsey.
Vinnuhópur ríkisstjórnarinnar verður skipaður fulltrúum frá eftirtöldum aðilum: Frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra vegna tengingar við byggðamál og sjávarútveg, frá innanríkisráðherra vegna samgöngumála, frá iðnaðar- og viðskiptaráðherra vegna raforku- og hitaveitumála og frá forsætisráðuneyti sem mun leiða hópinn.
Byggð í hættu
Fréttatofa RÚV fjallaði um slæma stöðu atvinnumála í Grímsey fyrr á þessu ári og sagði að kvótaskerðingu, skuldsetningu og gengisfall krónunnar væru helstu ástæður þess að útgerðir í Grímsey eigi í fjárhagsvanda. Þá sagði bæjarstjóri Akureyrar ástandið vera krítískt en í eynnu búa um 90 manns.