Virði Alvotech aukist 142 milljarða á 16 dögum – Félagið orðið verðmætast í Kauphöllinni

Í kjölfar þess að Alvotech var skráð á First North markaðinn í sumar hríðféll virði félagsins. Eftir að félagið færði sig yfir á Aðalmarkaðinn hefur það hins vegar tekið nánast fordæmalaust stökk upp á við. Virðið jókst um 50 prósent á 16 dögum.

Róbert Wessman er forstjóri Alvogen og Alvotech.
Róbert Wessman er forstjóri Alvogen og Alvotech.
Auglýsing

Mark­aðsvirði Alvot­ech hefur auk­ist um 142 millj­­arða króna á rétt rúmum tveimur vik­um, eftir að hluta­bréf félags­­ins voru færð af First North mark­aðnum yfir á Aðal­­­markað Kaup­hallar Íslands. Í lok dags 7. des­em­ber var mark­aðsvirði Alvot­ech um 285 millj­­arðar króna en við lok við­­skipta í gær var það komið í 427 millj­­arða króna. Það þýðir að mark­aðsvirði Alvot­ech hefur auk­ist um 50 pró­sent á 16 dög­um. 

Það gerir Alvot­ech að verð­mætasta fyr­ir­tæk­inu í Kaup­höll Íslands, en á þessum dögum tók það fram úr Marel sem haldið hefur þeirri stöðu um ára­bil. Mark­aðsvirði Mar­el, sem hefur lækkað um tæp­lega 45 pró­sent það sem af er árinu 2022, var 370 millj­arðar króna á föstu­dag.

Alvot­ech var fyrst skráð á First North mark­að­inn í sumar og hafði fallið skarpt í verði á þeim mán­uðum sem liðnir voru frá skrán­ingu. Þær miklu breyt­ingar sem orðið hafa á síð­ustu dögum hafa gert það að verkum aðgengi bréf­anna er nú komið 16,4 pró­sent yfir skrán­ing­ar­geng­i. 

Alvot­ech er líka skráð á markað í Banda­­ríkj­unum og er eina íslenska félagið sem nokkru sinni hefur verið skráð bæði þar og hér. 

Eru að koma lyfjum á markað

Alvot­ech er líf­­tækn­i­­fyr­ir­tæki sem ein­beitir sér að þróun og fram­­leiðslu líf­­tækn­i­hlið­­stæð­u­lyfja fyrir sjúk­l­inga um allan heim. Alvot­ech stefnir að því að verða leið­andi fyr­ir­tæki á sviði líf­­tækn­i­hlið­­stæð­u­lyfja.

Félagið setti á þessu ári á markað sam­heita­lyfið Hukyndra sem fram­­leitt er í lyfja­verk­smiðju félags­­ins í Vatns­­­­­mýr­inni. Um er að ræða fyrsta lyf Alvot­ech á mark­aði. Þann 7. des­em­ber var til­­kynnt um að lyfið væri komið í sölu í 16 Evr­­ópu­löndum og í Kanada. 

Auglýsing
Fyrir rúmri viku síðan var greint frá því að Alvot­ech hefði gengið frá fjár­mögnun að fjár­hæð um 8,5 millj­arðar króna, miðað við núver­andi gengi Banda­ríkja­dals, í formi víkj­andi skulda­bréfa með breytirétti í almenn hluta­bréf í Alvot­ech. Eig­endur skulda­bréf­anna hafa rétt til þess að breyta upp­runa­legum höf­uð­stól auk áfall­inna vaxta og ávöxt­unar að hluta eða öllu leyti í almenn hluta­bréf í Alvot­ech á föstu gengi, sem er tíu Banda­ríkja­dalir á hlut. Það er lægra verð en gengi bréf­anna var í Kaup­höll­inni í New York við lok við­skipta á fimmtu­dag. Breytirétt­inn má nýta að hluta eða öllu leyti þann 31. des­em­ber 2023 eða 30. júní 2024. 

Á fimmtu­dag, 22. des­em­ber, var svo greint frá því að banda­ríska lyfja­eft­ir­litið hefði lokið skoðun á umsókn um mark­aðs­leyfi fyrir AVT02, sem er líf­tækni­lyfja­hlið­stæða ­gigt­ar- og húð­sjúk­dóma­lyfs­ins Humira, og stað­fest að fram­lögð gögn sýni að kröfur um útskipti­leika séu upp­fyllt­ar. Humira er sölu­hæsta lyf heims og selst fyrir tæp­lega 2.900 millj­arða króna á ári, en um 85 pró­sent söl­unnar er í Banda­ríkj­un­um. 

Veit­ing mark­aðs­leyfis í Banda­ríkj­unum er nú háð full­nægj­andi nið­ur­stöðu kom­andi end­ur­út­tektar á fram­leiðslu­að­stöðu fyr­ir­tæk­is­ins í Reykja­vík sem áætlað er að fari fram á fyrsta fjórð­ungi 2023. Umsókn­ina um mark­aðs­leyfi á að afgreiða í síð­asta lagi 13. apríl næst­kom­andi.

Í kjöl­far þess­ara tíð­inda hækk­uðu hluta­bréf í Alvot­ech um 30 pró­sent á einum deg­i. 

Hafa tapað miklu en tekjur að aukast

Þann 1. des­em­ber síð­ast­lið­inn var greint frá því að Mark Levick, for­­stjóri félags­­ins, hefði ákveðið að biðj­­ast lausnar og að Róbert Wess­man, starf­andi stjórn­­­ar­­for­­maður og stofn­andi Alvot­ech, muni taka við for­­stjóra­­starf­inu á nýju ári. Róbert verður því bæði stjórn­­­ar­­for­­maður og for­­stjóri. 

Alvogen tap­aði 28 millj­­örðum króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins. Tekjur félags­­ins juk­ust hins vegar mik­ið, úr 291 millj­­ónum króna á sama tíma­bili í fyrra í 8,7 millj­­arða króna. Róbert Wessman sagði við Frétta­vakt­ina á Hring­braut fyrr í þessum mán­uði að áætl­­­anir geri ráð fyrir að hagn­aður verið af rekstr­inum eftir mitt næsta ár.

Flókið er að átta sig á end­an­legum eig­enda­hópi Alvot­ech eins og stend­ur. Listi yfir hlut­hafa er ekki aðgengi­legur á heima­síðu félags­ins né í gögnum sem Kaup­höll Íslands birt­ir. Fyrir liggur þó að við skrán­ingu á First North mark­að­inn í sumar var fjár­fest­inga­fé­lagið Azt­iq, sem er að stórum hluta í eigu Róberts , með rúm­lega 40 pró­senta hlut. Þar á eftir kom Alvogen, syst­ur­fé­lag Alvot­ech, með um 30 pró­sent, en Róbert á um þriðj­ung í því félagi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent