Félagsdómur hefur úrskurðað að sjávarútvegsfyrirtækið Vísir hf. hafi brotið gegn ákvæðum kjarasamninga þegar fyrirtækið hætti fiskvinnslu á Húsavík. Alþýðusamband Íslands (ASÍ) rak málið fyrir dómnum, fyrir hönd Starfsgreinasambands Íslands vegna Framsýnar stéttarfélags, gegn Samtökum atvinnulífsins (SA) vegna Vísis. Greint er frá niðurstöðu Félagsdóms á heimasíðu Framsýnar.
Tildrög málsins eru þau að Vísir, sem rekið hefur fiskvinnslur í Grindavík, Djúpavogi, Húsavík og Þingeyri, tók ákvörðun í mars um að flytja alla starfsemi fyrirtækisins til Grindavíkur. Þann 1. apríl síðastliðinn var starfsfólki Vísis á Húsavík tilkynnt um langvinna rekstrarstöðvun fiskvinnslunnar vegna hráefnisskorts. Hinn 1. maí síðastliðinn var svo starfsstöð Vísis á Húsavík lokað.
Ekki hægt að kenna hráefnisskorti um
Framsýn stéttarfélag taldi ranglega að verki staðið í málinu, ekki væri um rekstrarstöðvun að ræða í skilningi kjarasamninga. Verið væri að leggja niður starfsemi Vísis á Húsavík, og til stæði að opna frystihús í Grindavík. Þá hafi engum hráefnisskorti verið til að dreifa sem réttlætt gæti rekstrarstöðvun samkvæmd lögum og kjarasamningum.
Samkvæmt frétt á heimasíðu Framsýnar, urðu forsvarsmenn Vísis ekki við áskorunum stéttarfélagsins þess efnis að standa rétt að málum gagnvart starfsfólki sínu og eftir atvikum segja því upp með samningsbundnum uppsagnarfresti og bjóða nýtt starf á nýjum stað. Andmæli stéttarfélagsins urðu til þess að þeim starfsmönnum sem kusu að þiggja ekki nýtt starf í Grindavík, var sagt upp með samningsbundnum hætti. Þar sem Vísir féllst ekki á sjónarmið Framsýnar, að ekki væri um að ræða rekstrarstöðvun vegna hráefnisskorts í skilningi kjarasamninga, var höfðað mál á hendur sjávarútvegsfyrirtækisins fyrir Félagsdómi til að fá úr því skorið hvort framkvæmd Vísis samrýmdist ákvæðum kjarasamninga, er tryggir verkafólki kauptryggingu í langvarandi rekstrarstöðvun.
Stöðvun fiskvinnslunnar átti aldrei að vera tímabundin
Félagsdómur komst að þeirri niðurstöðu að það lægi fyrir að stöðvun fiskvinnslunnar á Húsavík hafi aldrei átt að vera tímabundin, eða standa aðeins meðan hráefnisskortur varði. Þvert á móti hafi verið ráð fyrir því gert áður en vinnslustöðvunin var tilkynnt að vinnsla myndi ekki hefjast aftur á Húsavík. Engu máli skipti þó Vísir leiddi í ljós að aflaheimildir fyrirtækisins dyggðu ekki til að halda uppi fullri starfsemi á öllum starfsstöðvum fyrirtækisins út fiskveiðiárið.
Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að túlka bæri ákvæði kjarasamninga á þann veg að vinnslustöðvun hlyti að vera tímabundinn, það er meðan hráefnisskortur varir, en ákvæðinu yrði ekki beitt þegar fyrirsjáanlegt væri að starfsemi hæfist ekki að nýju að liðnum þeim sex mánaða hámarkstíma sem mælt sé fyrir um í ákvæðinu. Félagsdómur féllst því á kröfur ASÍ og dæmdi að rekstrarstöðvun Vísis á Húsavík hafi brotið gegn ákvæðum kjarasamninga, og dæmdi Vísir til að greiða stefnanda 400 þúsund krónur í málskostnað.
Hægt er að nálgast dóm Félagsdóms hér að neðan.