Fjarskipti hf., sem á og rekur Vodafone á Íslandi, hefur kvartað til Neytendastofu yfir útvarpsauglýsingum Símans þar sem fullyrt er að „Vodafone hafi slökkt á hliðræðum útsendingum RÚV og að 70% landsmanna segi Sjónvarp Símans standa framar helsta keppinautnum“.
Í tilkynningu frá Vodafome segir að báðar þessar fullyrðingar séu „rangar, villandi og til þess eins fallnar að kasta rýrð á Vodafone og blekkja neytendur. Símanum er fullkunnugt um að lokun á hliðrænum útsendingum RÚV er alfarið ákvörðun RÚV, enda tók Síminn þátt í forvali fyrir lokað útboð RÚV um verkið. Verkefnið sem boðið var út fólst í því að koma á stafrænum útsendingum í stað hliðrænna á landinu öllu. Síminn stóðst forvalskröfur en heltist úr lestinni á viðræðustigi. Vodafone átti hins vegar hagstæðasta tilboð og var því gengið til samninga við félagið. Með hliðsjón af þessari forsögu er fullyrðing Símans um að Vodafone hafi slökkt á hliðrænum útsendingum RÚV sett fram af ásetningi og gegn betri vitund og framsetning hennar til þess fallin að skapa neikvæð hughrif um þjónustu Vodafone“.
Vodafone segir að löng hefð sé fyrir því að sá sem heldur fullyrðingu á borð við þá að 70 prósent landsmanna telji Sjónvarp Símans standa framar helsta keppinaut sínum, þurfi að sanna hana. „Verður fyrirfram að telja yfirgnæfandi löglíkur fyrir að Símanum takist ekki að sanna fullyrðinguna, enda afar ólíklegt að spurningin hafi verið borin undir 70% landsmanna. Fullyrðingin er því röng og ber að banna hana.“