VR búið að samþykkja kjarasamninga – 82 prósent sögðu já

Kosningu um nýjan skammtímakjarasamning stærsta stéttarfélags landsins lauk í hádeginu í dag. Hann var samþykktur með afgerandi hætti. Búið er að samþykkja samninga fyrir um 80 prósent af almenna vinnumarkaðnum.

Flestir þeirra sem undirrituðu samninganna 12. desember síðastliðinn fyrir hönd félagsmanna stilltu sér upp í myndatöku í kjölfarið. Á myndina vantar hins vegar Ragnar Þór Ingólfsson, formann VR, sem sagðist ekki hafa haft geð í að láta mynda sig.
Flestir þeirra sem undirrituðu samninganna 12. desember síðastliðinn fyrir hönd félagsmanna stilltu sér upp í myndatöku í kjölfarið. Á myndina vantar hins vegar Ragnar Þór Ingólfsson, formann VR, sem sagðist ekki hafa haft geð í að láta mynda sig.
Auglýsing

Búið er að sam­þykkja kjara­samn­ing VR, Lands­­sam­­band íslenskra verzl­un­ar­manna og sam­­flot stétt­­ar­­fé­laga iðn­að­ar- og tækn­i­­fólks gerðu við Sam­tök atvinnu­lífs­ins 12. des­em­ber síð­ast­lið­inn, en atkvæða­greiðslu lauk í hádeg­inu í dag. Í frétt RÚV segir að 82 pró­sent þeirra sem kusu hjá VR hafi sam­þykkt samn­ing­inn og að kjör­sókn hafi verið 25 pró­sent, sem þykir mik­ið. 

Þar kemur einnig fram að félagar Raf­iðn­að­ar­sam­bands­ins hafi sam­þykkt einnig samn­ing­inn. Alls 77 pró­sent sveina sam­þykktu hann, 73 pró­sent tækni­fólks og 88 pró­sent félaga í Grafíu sam­þykktu.

Auglýsing
Samningarnir munu gilda frá 1. nóv­­em­ber síð­­ast­liðnum og til 31. jan­úar 2024. Í þeim fel­­ast að almennar launa­hækk­­­anir verða 6,75 pró­­sent og þær taka gildi frá 1. nóv­­em­ber síð­­ast­liðn­­­um. Hækk­­unin getur þó að hámarki orðið 66 þús­und krón­­ur, sem þýðir að þak hennar er rétt undir einni milljón króna mán­að­­ar­­laun­­um. Þá var samið um að des­em­ber­­upp­­­bót fyrir næsta ár verði 103 þús­und krónur og orlofs­­upp­­­bót 56 þús­und krón­­ur. 

Hag­­vaxt­­ar­auk­inn svo­­kall­aði, sem átti að taka gildi 1. apríl næst­kom­andi og er hluti af síð­ustu kjara­samn­ingum sem gerðir voru 2019, fellur sam­hliða nið­­ur. Það þýðir að hag­­vaxt­­ar­auk­inn fellur inn í launa­hækk­­un­ina. Auk þess taka nýjar launa­töflur gildi hjá fólki sem vinnur sam­­kvæmt taxta sem leiða til ein­hverra hækk­­ana umfram almennu hækk­­un­ina.

Með þessu er búið að ljúka skamm­­tíma­­samn­ingum við meiri­hluta almenns vinn­u­­mark­að­­ar, en áður hafði verið samið við Starfs­­greina­­sam­­band­ið sem er þegar búið að sam­þykkja sína samn­inga. Um er að ræða 80 þús­und manna hóp. Enn á eftir að semja við um 20 pró­­sent af almenna vinn­u­­mark­að­inum og er stærsti bit­inn þar Efl­ing, næst stærsta stétt­­ar­­fé­lag lands­ins. Til við­­bótar við þann hóp starfa um 61 þús­und manns á opin­bera mark­að­inum og hjá öðrum aðil­u­m.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent