Nú hafa rúmlega 20.500 manns skrifað nafn sitt á undirskriftarsöfnunina „Þjóðareign,“ þar sem skorað er á Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, að vísa í þjóðaratkvæðagreiðslu væntanlegum lögum um úthlutun makrílkvóta, það er ef stjórnarfrumvarp Sigurðar Inga Jóhannssonar, sjávarútvegsráðherra, verður samþykkt á Alþingi.
Agnar K. Þorsteinsson, Bolli Héðinsson, Elín Björg Ragnarsdóttir, Guðrún Pétursdóttir, Henný Hinz, Jón Sigurðsson, Jón Steinsson og Þorkell Helgason standa að undirskriftasöfnuninni, en henni var hrundið af stað í gær.
„Við undirrituð skorum á forseta Íslands að vísa í þjóðaratkvæðagreiðslu hverjum þeim lögum sem Alþingi samþykkir þar sem fiskveiðiauðlindum er ráðstafað til lengri tíma en eins árs á meðan ekkert ákvæði um þjóðareign á auðlindum hefur verið sett í stjórnarskrá og þjóðinni ekki verið tryggt fullt gjald fyrir afnot þeirra,“ stendur í áskoruninni til forsetans.
Í fréttatilkynningu frá hópnum sem stendur að undirskriftasöfnuninni að frumvarpið feli í sér grundvallarbreytingu á tilhögun fiskveiðistjórnunarkerfisins.
„Verði frumvarpið að lögum er útgerðinni í fyrsta sinn veitt óafturkallanlegt forræði yfir aflaheimildum til lengri tíma en eins árs og Alþingi getur í reynd ekki afturkallað þá ráðstöfun. Um leið leggja stjórnvöld til að veiðigjöld verði ákveðin til þriggja ára sem aftur bindur hendur Alþingis fram yfir næstu kosningar.
Lagasetning af þessu tagi kemur í veg fyrir að unnt sé að kveða á um skilyrðislaust eignarhald þjóðarinnar á fiskveiðiauðlindinni með ákvæði í stjórnarskrá sem jafnframt tryggi að þjóðin njóti fulls gjalds af afnotum á auðlindinni.“
Hér má lesa nýlega fréttaskýringu Kjarnans um makrílfrumvarp Sigurðar Inga.