Í þættinum um vefarann höldum við áfram að ræða um vaðmál sem lengi vel var helsta útflutningsvara Íslendinga. Í nútíma samfélagi er hins vegar lítið um að fólk sé með risavaxinn vefstól í stofunni hjá sér. Hins vegar vill svo til að við fundum slíka konu í Borgarfirði, sem ekki er með einn heldur tvo vefstóla uppi. Við heimsóttum vefnaðarkennarann og listakonuna Snjólaugu Guðmundsdóttir á Brúarlandi á Mýrum og heyrðum mörg torkennileg orð sem við erum enn að melta. Meira um ævintýri Önnu og Sigrúnar má lesa um á www.kvikvi.is.
Kjarninn í samstarfi við Storytel býður þér að hlusta frítt á þúsundir hljóðbóka í símanum þínum í 30 daga. Það eina sem þú þarft að gera er að skrá þig á www.storytel.is/kja…inn og byrja að njóta. Storytel.is, þúsundir hljóðbóka í símanum þínum.