Við höfum harðan skráp, eltum skinn og kíkjum á Snæfellsnesið enn einu sinni! Í þetta sinn á Hákarlasafnið í Bjarnarhöfn þar sem við fræðumst um hákarlaskráp. Anna virðist hafa farið á of mörg námskeið og segir okkur frá sútunarnámskeiði hjá Lene Zachariassen þar sem hún lærði undirstöðuatriðin í sútun sem hún ætlar að gera í dauða tímanum, og við lærum að græða peninga með nábrók. Meira um ævintýri Önnu og Sigrúnar má sjá á www.kvikvi.is.
Meira handa þér frá Kjarnanum