Gestur Aðfararinnar að þessu sinni er ekki af verri endanum, sér í lagi nú þegar svartasta skammdegið ríður yfir. Hinn fimmfaldi Íslandsmeistari Tumi Ferrer kom færandi hendi með rjúkandi kaffibolla í jólamáli og ræddi við okkur um kaffi og borgir.
Aðförin er hlaðvarpsþáttur um skipulagsmál. Magnea Guðmundsdóttir og Guðmundur Kristján Jónsson eru umsjónarmenn þáttarins. Frí áfylling.