„Hvað er eiginlega í gangi með Lóu Pind?“ Spurði skólafélagi minn, sem gekk með okkur vinkonunum í MH, þegar ég hitti hann á förnum vegi um daginn. Konan hans tók undir: „Ég þekki konuna ekki neitt, en vá hvað hún er farin að geisla.“ Sveimérþá, vinkona mín hefur gersamlega umbreyst á síðustu vikum, úr háalvarlegu rannsóknarfréttakonunni í kolbrúna, vöðvastælta, skælbrosandi dansdívu sem svífur um í glimmerskýi. Ég ákvað að bjóða Lóu í þáttinn til að ræða hverju sætir.
Meira handa þér frá Kjarnanum