Útvarpsmaðurinn Atli Már Steinarsson er gestur Hismisins og gerir að vanda upp stóru málin í sínu lífi, ástina, barneignir og framtíðina. Farið er yfir parhúsakaup í Þorlákshöfn á bland.is, kosningamyndband Texas-Magga, hvernig samfélagsmiðar eru að drepa hreinræktaða sérvisku og afsökunarbeiðnir og útskýringar í kjölfar Panama-skjalanna, svo eitthvað sé nefnt.