Hismið er í miklum janúar-realisma í dag. Farið er yfir hinn sístækkandi kleinuhringja markað á Íslandi og því velt upp hvort ekki sé kominn tími á að nútímavæða íslenska snúðinn. Þá er farið yfir víkingaklappið og hvort Joey Drummer og Tólfan ættu hugsanlega að koma með nýtt efni til að fylgja eftir árangri síðasta árs. Þá er farið yfir innkaupalista, allt frá strangheiðarlegum Notes-listum yfir í háþróuð rauntíma-öpp. Loks er því velt upp hvenær frasar daga uppi og eiga að vera settir til hliðar.
Meira handa þér frá Kjarnanum