Ari Eldjárn er gestur Hismisins að þessu sinni. Farið er yfir 37 ára afmæli Grétars og hvernig hann passi við pabba Einars Áskels sem var 36 ára og hvernig foreldrar breyttust úr því að vera strangir og pirraðir yfir í að vera æðislegir og skemmtilegir við börnin sín. Þá eru ökuskírteini fyrr og nú rædd og ástæður þess að John McClane fékk aldrei stöðuhækkun. Loks eru nefndar bestu framhaldsmyndirnar sem hafa aldrei verið gerðar.
Meira handa þér frá Kjarnanum