Það var bara eins og að horfa á lestarslys í beinni að fylgjast með landsfundi Samfylkingarinnar, segja Hismismennirnir Árni Helgason og Grétar Theodórsson. Þeir eru gestslausir þessa vikuna og ræða eldfimustu mál vikunnar óhindraðir. #FreeTheNipple, landsfundurinn og velgengnistan Ingva Hrafns er rætt í þaula.
Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, verður gestur Hismisins strax eftir páska. Hlustendur eru hvattir til að senda Hisminu spurningar á Twitter-nafnið @hismid_hladvarp. Pírata-flokkurinn hefur mælst mjög sterkur undanfarið í könnunum þrátt fyrir að hafa yfirlýsta stefnu um stór málefni.
Hlustaðu á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér að ofan eða í hlaðvarpsstraumi Kjarnans. Svo má fylgjast með Hisminu á Twitter.