Klikkið – Raunverulegur bati, orðalag og reynsla

Í þessum fyrsta þætti ann­arrar þáttar­aðar Klikks­ins mun Svava Arn­ar­dóttir Iðju­þjálfi og Hug­arafls­kona, taka við­tal við Daniel Fis­her geð­lækni með lif­aða reynslu af geð­klofa. Spjall þeirra fer um víðan völl en þau taka fyrir geð­heil­brigð­is­mál hér­lendis sem og í Banda­ríkj­un­um. 

Daniel Fis­her er geð­læknir frá Harvard Med­ical háskól­an­­um. Hann er einn af fáum geð­læknum í heim­inum sem talar opin­ber­­lega um reynslu sína af geð­­sjúk­­dóm­­um. Hann hefur þrisvar áður komið til Íslands með fyr­ir­­lestra og vinn­u­smiðjur á vegum Hug­­arafls, en þær fjöll­uðu um hug­­mynda­fræð­ina á bak­við Bata­mód­el­ið, þ.e. PACE mód­elið (Per­sonal Assistance in Comm­unity Existence) sem byggir á vald­efl­ingu (e. empowerment). Síð­­­ast kom Fis­her til lands­ins með nám­­skeið í eCPR – and­­legt hjarta­hnoð höfum við kosið að kalla það á íslensku – en það er lýð­heilsu­­kennsla fyrir alla, þróuð til að kenna fólki að hjálpa öðrum í gegnum til­­f­inn­an­­lega krís­u.Fis­her er fram­­kvæmda­­stjóri National Empowerment Center í Boston. Hann fer víða um heim og ræðir reynslu sína auk þess sem hann hjálpar til að inn­­­leiða bata­hug­­mynda­fræð­i. 



Svava er braut­ryðj­andi í því að móta nýtt starf hjá Hug­ar­afli sem byggir á end­ur­hæf­ingu og vald­efl­ingu. Hún er með hóp­starf og vinnur að mik­il­vægum verk­efnum með ungu fólki. Áður en hún hóf störf hjá Hug­ar­afli var hún not­andi Hug­arafls og hefur náð ótrú­legum árangri í bata. Hún útskrif­að­ist úr Iðju­þjálfun við Háskól­ann á Akur­eyri og skrif­aði loka­rit­gerð sína um bata­hvetj­andi með­ferð­ar­að­ila.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023