Klikkið snýr aftur eftir langt frí og við höldum að þessu sinni áfram með þáttaröð okkar um valdeflingarpunktana 15. Í þessum þætti förum við yfir valdeflingarpunkt 14 - "Að einstaklingurinn stuðli sjálfur að viðvarandi þroska og breytingum."
Í þessum lið vildum við leggja áherslu á að valdefling er ekki ákvörðunarstaður, heldur ferðalag; enginn hefur náð einhverju lokastigi þar sem frekari þroski og breyting er óþarfi.
Gestur þáttarins í dag ætti ekki að vera hlustendum ókunn, en það er Auður Axelsdóttir sem ræðir við Árna og Pál.