Mögnuð útganga Sigmundar, kosningayfirboð og misskipting auðs

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hélt áhuga­fólki um póli­tík á sæt­is­brún­inni alla helg­ina. Ásak­anir um ein­ræði, tækni­fúsk og almenn óheil­indi voru bara for­smekk­ur­inn af drama­tík­inni sem eftir fylgdi. Eftir tap í for­manns­kosn­ingum átti Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son eina mögn­uð­ustu útgöngu íslenskrar stjórn­mála­sögu. Í kjöl­far hennar hafa flokið ásak­anir um að flokks­eig­enda­fé­lagið og fjár­mála­öflin hafi valdið af gras­rót­inni í flokknum og æsi­legar sögur settar fram um kosn­inga­svind­l. 

Á sama tíma er kosn­inga­lof­orða­flaum­ur­inn að hefjast, enda örfáar vikur í kosn­ing­ar. Sam­fylk­ingin kynnti sitt hús­næð­islof­orð fyrir fátækt eign­ar­laust fólk sem mun lík­lega vinna jafn lítið á heild­ar­vand­anum á hús­næð­is­mark­aði og „Fyrsta fast­eign“ rík­is­stjórn­ar­inn­ar, en hún er ætluð fyrir það eign­ar­lausa fólk sem hefur efni á sér­eign­ar­sparn­að­i. 

Mis­skipt­ing auðs, mæld í krónum en ekki í hlut­föll­um, eykst ár frá ári og sífellt lendir meira af nýjum auði hjá þeim sem eiga mest. Stór hluti þess hóps er í þeim álnum sem hann er vegna góðs aðgengis að tæki­færum eða vegna auð­linda­nýt­ing­ar. Nið­ur­staða þessa kerfis mik­illar mis­skipt­ingar auðs er það sam­fé­lag trausts­leysis sem Íslend­ingar búa við í dag. 

Þetta og margt fleira í Kviku­þætti vik­unnar þar sem Þór­unn Elísa­bet Boga­dótt­ir, aðstoð­ar­rit­stjóri Kjarn­ans, og Þórður Snær Júl­í­us­son, rit­stjóri hans, fara yfir það helsta sem er á döf­inni í þjóð­fé­lags­um­ræð­unni.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023