Vinstri græn þurfa að velja milli jarðsprengjusvæðis og svipuganga

Staðan i stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum er orðin enn flókn­ari en hún var. Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, virt­ist afar pirr­aður yfir því að Við­rein og Björt fram­tíð hafi lagt jafn mikla áherslu á helstu stefnu­mál sín í við­ræðum und­an­farna daga og raun bar vitni þegar hann til­kynnti for­seta Íslands að hann væri án við­mæl­enda.

Nú hefst lota tvö þar sem Katrín Jak­obs­dóttir hefur fengið stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð og reyn­ir, að minnsta kosti í orði, að mynda fimm flokka rík­is­stjórn frá miðju til vinstri. Þeir sem eiga að sitja í þeirra rík­is­stjórn eru hins vegar þegar farnir að hnakk­ríf­ast opin­ber­lega, ásaka hvorn annan um lygar og óheil­indi og fyrir að hafa komið sér í „ómögu­lega stöð­u“. Þeir flokkar eru því sjálfum sér verstir, sé þeirra helsta mark­mið að halda Sjálf­stæð­is­flokknum utan rík­is­stjórn­ar.

Vinstri græn hafa auð­vitað fleiri kosti, t.d. þriggja flokka rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki og þriðja flokki, mögu­lega Fram­sókn­ar­flokki. Flokk­ur­inn þarf ekki að líta til ann­ars en þeirrar með­ferðar sem Ótt­arr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíð­ar, fékk í umræð­unni um liðna helgi til að sjá hvað bíður þeirra í gagn­rýni verði sú nið­ur­staða ofan á í lotu þrjú.

Þetta og allt hitt sem skiptir máli varð­andi flókn­ustu stjórn­ar­myndun síð­ari tíma er til umfjöll­unar í Kviku vik­unn­ar. Umsjón­ar­menn eru að venju Þór­unn Elísa­bet Boga­dótt­ir, aðstoð­ar­rit­stjóri Kjarn­ans, og Þórður Snær Júl­í­us­son, rit­stjóri hans.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023