Vantraust á Sigríði Á. Andersen dómsmálaráðherra er umfjöllunarefni Kviku vikunnar. Gestur þáttarins eru Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, og Birgir Ármannsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks. Viðmælendurnir tókust hart á um ýmis efnisatriði málsins.
Umsjónarmaður er að venju Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans. Kvikan er hljóðrás af sjónvarpsþætti Kjarnans sem frumsýndur er á Hringbraut á miðvikudögum klukkan 21.