Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og oddviti Samfylkingarinnar, segir að kosningaáherslur flokks síns ættu að hluta til að vera fyrirsjáanlegar og að þær muni endurspegla þá stefnu sem hefur verið rekin í borginni á undanförnum árum. Dagur er gestur vikunnar í Kvikunni.
Umsjónarmaður er að venju Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans. Kvikan er hljóðrás af sjónvarpsþætti Kjarnans sem frumsýndur er á Hringbraut á miðvikudögum klukkan 21.