Hlaðvarpsþátturinn Kvikan hefur göngu sína að nýju eftir nokkurt hlé en hann mun verða á dagskrá vikulega héðan í frá. Birna Stefánsdóttir, blaðamaður Kjarnans, mun stýra þættinum en með henni eru Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri, og Bára Huld Beck, blaðamaður.
Í vöruborði Kvikunnar í dag eru eldri menn og puntdúkkur, fjárlög þar sem íslenska ríkið mun eyða meiru en nokkru sinni fyrr, heimsókn varaforseta Bandaríkjanna til Íslands og umfjöllun um lágvaxna huldukonu sem getur illa ákveðið hvað hún heitir, en segist vera að endurreisa WOW air.