Margt gerðist í liðinni viku. Þingstörf hófust að nýju – ræður voru haldnar þar sem deilt var um hvort þær væru raunverulegatengdar. Óvænt sápuópera spratt upp úr ósætti milli lögreglumanna um föt og bíla og alþjóðleg stofnun smellti þeirri niðurstöðu á íslenskt efnahagslíf að hér væru lífskjör ein þau bestu í heimi.
Umsjónarmaður Kvikunnar að þessu sinni er Birna Stefánsdóttir og með henni eru þau Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, og Bára Huld Beck blaðamaður.