Í vöruborði Kvikunnar í dag er ekkert minna en sjálfur tíminn og vatnið sem Andri Snær Magnason rithöfundur fjallar um í nýju bókinni sinni, ólíkar týpur meðal kjósenda stjórnmálaflokka, gífurleg vandræði GAMMA og þrengri lánsskilyrði hjá Lífeyrissjóði verzlunarmanna.
Í síðustu viku færðu tveir sjóðir í stýringu GAMMA niður virði eigna sinna um milljarða króna. Eigið fé Novus, sjóðs í stýringu hjá GAMMA, var metið á 4,4 milljarða króna um síðustu áramót en nú, eftir að eignir sjóðsins voru endurmetnar, er eigið fé 40 milljónir króna. Þá hefur jafnframt verið greint frá því að fleiri sjóðir á vegum félagsins séu í vandræðum.
Íslenskt stjórnmálalandslag hefur breyst mikið á undanförnum árum. Þjóðin hefur snúið baki við fjórflokkakerfinu og í síðustu kosningum náðu átta flokkar á þing en hvers konar erkitýpur kjósa þessa átta flokka?
Þá hefur aðgengi landsmanna að hagstæðum lánum verið skert eftir að stjórn eins stærsta lífeyrissjóðs landsins, Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, ákvað í síðustu viku að þrengja lánsskilyrði sjóðsins. Þá hefur sjóðurinn jafnframt ákveðið að hætta að lána nýjum lántakendum verðtryggð lán á breytilegum vöxtum, en þau hafa verið einna hagkvæmustu lánin sem í boði hafa verið á undanförnum árum.
Birna Stefánsdóttir stjórnar þættinum og með henni eru Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans og Bára Huld Beck, blaðamaður.