Kjartan og Magnús munu fara á allar sýningar leikársins 2019/2020 og spjalla um þær í vikulegum þáttum. Þeir koma úr ólíkum áttum en Kjartan fer lítið í leikhús á meðan Magnús er sviðslistanemi og starfar sem tæknimaður í leikhúsi.
Í þessari viku fóru þeir á Ör (eða Maðurinn er eina dýrið sem grætur) í Þjóðleikhúsinu og ræddu hvað Kjartan á erfitt með að mæta á réttum tíma í leikhús, hvað lokabreytingar rétt fyrir frumsýningu geta gert gott og hvar munurinn liggur á forsýningum í bíó og leikhúsi.