Maí fór í djúpa þanka um ástina hjá Lestrarklefanum. Ástin er alls staðar! Og því ætti enginn að gleyma. Í bókmenntaheiminum er hún þó kannski helst í bókum miðuðum að konum. Þess vegna er rætt við Eyrúnu Lóu Eiríksdóttur, einn helsta sérfræðing skvísubókmennta á Íslandi, í þessum þætti. Hver er munurinn á ástarsögum og skvísubókmenntum? Hvað geta skvísubókmenntir gefið þér? Hvaðan koma þær? Einnig flytur Fanney Hólmfríður Kristjánsdóttir hjartnæman pistil um ástina.
Lesari og ritstjóri er Katrín Lilja Jónsdóttir.