Fyrirtæki sem og einstaklingar hafa aðgang að betri upplýsingum en áður til að taka betri ákvarðanir í viðskiptalífinu. Markaðsvarpið ræðir um hvaða gögn Meniga og Creditinfo geta boðið viðskiptavinum upp á við þær Evu Björk Guðmundsdóttur, sölustjóra hjá Meniga, og Sigríði Völu Halldórsdóttur, forstöðumann viðskiptastýringar hjá Creditinfo. Hvernig er markaðurinn að þróast þegar kemur að betri gögnum, leiðum til að minnka vanskil og að taka betri ákvarðanir út frá kauphegðun viðskiptavina?