Heimir Fannar Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri Microsoft á Íslandi fjallar um helstu áskoranir íslenskra fyrirtækja á nýjum og spennandi tímum í Markaðsvarpinu. Rætt er um spennandi hluti sem er að gerast fram undan hjá Microsoft erlendis og kaup þeirra á samfélagsmiðlinum Linkedin.
Í þættinum er einnig rætt um miklar áskoranir hjá stjórnendum fyrirtækja þegar kemur að innleiðingu næstu tækninýjunga og sérstaklega í „Augmented reality (AR)“ sem er ákveðin tegund af sýndarveruleika.
Umsjónarmenn þáttarins eru Trausti Haraldsson og Bjarki Pétursson.