Í einni af Íslendingasögunum leynist frægasti miðaldadraugur sem sögur fara af, hann er jafnvel frægur út fyrir landssteinana. Hvern getur verið um að ræða? Jú, það hlýtur að vera hann Glámur sem er örlagavaldur í lífi Grettis Ásmundarsonar í samnefndri sögu.
Sigrún Elíasdóttir og Anna Dröfn Sigurjónsdóttir kafa í sálarástand og myrkfælni eins aðaltöffara Íslandssögunnar.