Ekkert því til fyrirstöðu að Ísland verði „VR-landið“

Stefanía G. Halldórsdóttir í CCP

Í vik­unni fór fram ráð­stefnan Slush Play sem er alþjóð­leg ráð­stefna sem fjallar um sýnd­ar­veru­leika (VR) og leikja­þró­un. Á ráð­stefn­unni héldu fjöl­margir erlendir aðilar erindi, og íslensk fyr­ir­tæki kynntu sig og sínar vör­ur.

Segja má að Slush Play sé eitt af því sem ýtir undir hug­mynd sem hefur verið rædd í heimi sprota og tækni­fyr­ir­tækja á Íslandi nýver­ið: að Ísland geri til­raun til að verða vagga sýnd­ar­veru­leika­þró­un­ar.

Til að ræða þessi mál fékk Norð­ur­skautið Stef­aníu G. Hall­dórs­dóttur í heim­sókn. Stef­anía er nýkomin til Íslands eftir nokk­urra ára starf hjá CCP í Kína (það mætti segja að henni hafi verið shang­haiað hingað heim 🙃). Hún mun taka við sem fram­kvæmda­stjóri CCP á Íslandi.

CCP, sem gerði tölvu­leik­inn EVE, fékk í fyrra $30m fjár­fest­ingu frá erlendum sjóð­um, og hefur þegar gefið út tvo tölvu­leiki fyrir sýnd­ar­veru­leika. Félagið er með einn leik í fram­leiðslu sem hefur verið til­kynnt­ur, og önnur rann­sókn­ar­verk­efni.

Í þætt­inum spjalla Krist­inn og Stef­anía um CCP og hennar störf þar, sýnd­ar­veru­leika og þróun hans, og mögu­leika Íslands á að verða vagga fyrir sýnd­ar­veru­leika. Aðspurð um mögu­leika þess sagði hún „Ég sé ekk­ert því til fyr­ir­stöð­u.“

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023