Raddir margbreytileikans – 1. þáttur: Hvernig sagan birtist í brjóstmyndum

Raddir marg­breyti­leik­ans er mann­fræði­hlað­varp þar sem rætt verður við íslenska mann­fræð­inga um það sem þeir eru að rann­saka. Einnig verður rætt við erlenda fræði­menn þegar færi gefst. Í fyrsta þætti er rætt við Krist­ínu Lofts­dótt­ur, pró­fessor við Háskóla Íslands, um nýlegar rann­sóknir henn­ar.

Megin rann­sókn­ar­þættir hennar eru sjálfs­myndir í margs­konar sam­hengi, kyn­þátta­hyggja, ras­is­mi, hvít­leiki og hug­myndir tengdar nýlendu- og síð­ný­lendu­hyggju. Einkum hefur hún skoðað stöðu Íslands og ann­arra Norð­ur­landa út frá stöðu þeirra og sjálfs­myndar í sam­hengi við nýlendu­tím­ann og arf­leifð henn­ar. Sjálfs­mynd Íslands sem sér­stök í sam­fé­lagi þjóð­anna, eins og lýsti sér m.a. í Útrásinni og „In­spired by Iceland“, er nokkuð sem Kristín hefur rann­sakað í seinni tíð.

Í þessum þætti ræðir Kristín um grein sem hún skrif­aði eftir að hafa heim­sótt safn á Kanarí­eyjum þar sem eru geymdar gifs­af­steypur og brjóst­myndir frá liðnum tíma. Kristín setur þessa safn­muni í sögu­legt og póli­tískt sam­hengi nýlendu­tím­ans og sýnir hvernig marg­vís­leg sögu­leg tengsl valds, kúg­unar og kyn­þátta­hyggju skar­ast í þessum minj­um. Síðan ræðir Kristín um vænt­an­lega bók sem hún er með­höf­undur að, sem fjallar um „sér­stöðu­hyggju“ (except­iona­l­ism), sem er einnig tit­ill bók­ar­inn­ar, en þar er fjallað um hug­myndir og sjálfs­myndir þjóð­ríkja um sér­stöðu­hug­myndir þeirra í sam­fé­lagi þjóð­anna.

Mynd: Aðsend

Umsjón­ar­fólk hlað­varps­ins eru Hólm­fríður María Ragn­hild­ar­dótt­ir, Krist­ján Þór Sig­urðs­son og Sandra Smára­dótt­ir.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023