Í þessum þætti er spjallað við Unni Dís Skaptadóttur, prófessor í mannfræði við HÍ, um yfirstandandi rannsókn hennar, Önnu Wojtynska og Pamelu Innes um gagnkvæm viðhorf og samskipti innflytjenda og heimafólks á mismunandi stöðum á Íslandi. Um er að ræða víðtæka og umfangsmikla langtíma vettvangsrannsókn þar sem farið er djúpt í samskipti og samlíf ólíkra hópa á ólíkum stöðum á landinu. Þetta spjall fjallar að miklu leyti um það að stunda vettvangsrannsókn – þó svo kórónuveiran hafi blandað sér í málið – og hvað það felur í sér og hvernig vettvangurinn mótar oft förina.
Unnur Dís Skaptadóttir er fædd 1959 í Reykjavík. Hún lauk námi í þjóðfélagsfræði 1982 við HÍ, BA í mannfræði 1984 frá University of Massachusetts, Amerst og doktorsnámi 1995 í mannfræði frá The Graduate School and University Center of the City University of New York.
Hún hefur m.a. stundað rannsóknir á stöðu kvenna í sjávarbyggðum á Íslandi, en hún hefur fyrst og fremst stundað yfirgripsmiklar rannsóknir á stöðu og reynslu innflytjenda, einkum kvenna, meðal annars í tengslum við vinnumarkaðinn á Íslandi og þær breytingar sem þar hafa átt sér stað, fyrir og eftir hrunið 2008. Eftir Unni Dís liggja viðamikil skrif, þar sem þættir eins og innflytjendur, farandfólk, hnattvæðing, fjölmenning og þverþjóðleiki eru miðlægir.