Raddir margbreytileikans – 17. þáttur: „Allt fólk á sér áhugaverða sögu að segja“

Í þessum þætti er spjallað við Unni Dís Skapta­dótt­ur, pró­fessor í mann­fræði við HÍ, um yfir­stand­andi rann­sókn henn­ar, Önnu Wojtynska og Pamelu Innes um gagn­kvæm við­horf og sam­skipti inn­flytj­enda og heima­fólks á mis­mun­andi stöðum á Íslandi. Um er að ræða víð­tæka og umfangs­mikla lang­tíma vett­vangs­rann­sókn þar sem farið er djúpt í sam­skipti og sam­líf ólíkra hópa á ólíkum stöðum á land­inu. Þetta spjall fjallar að miklu leyti um það að stunda vett­vangs­rann­sókn – þó svo kór­ónu­veiran hafi blandað sér í málið – og hvað það felur í sér og hvernig vett­vang­ur­inn mótar oft för­ina.

Unnur Dís Skapta­dóttir er fædd 1959 í Reykja­vík. Hún lauk námi í þjóð­fé­lags­fræði 1982 við HÍ, BA í mann­fræði 1984 frá Uni­versity of Massachu­setts, Amerst og dokt­ors­námi 1995 í mann­fræði frá The Gradu­ate School and Uni­versity Center of the City Uni­versity of New York.

Hún hefur m.a. stundað rann­sóknir á stöðu kvenna í sjáv­ar­byggðum á Íslandi, en hún hefur fyrst og fremst stundað yfir­grips­miklar rann­sóknir á stöðu og reynslu inn­flytj­enda, einkum kvenna, meðal ann­ars í tengslum við vinnu­mark­að­inn á Íslandi og þær breyt­ingar sem þar hafa átt sér stað, fyrir og eftir hrunið 2008. Eftir Unni Dís liggja viða­mikil skrif, þar sem þættir eins og inn­flytj­end­ur, far­and­fólk, hnatt­væð­ing, fjöl­menn­ing og þver­þjóð­leiki eru mið­læg­ir.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023