Í þessum þætti er rætt við Pamelu Innes, dósent í mannfræði við Háskólann í Wyoming. Pamela á sér langan feril sem tungumála mannfræðingur og hefur einkum stundað rannsóknir sem tengjast tungumálum og málsamfélögum frumbyggjahópa í Norður-Ameríku.
Í seinni tíð hefur hún unnið að rannsóknum með íslenskum mannfræðingum og öðru fræðafólki, einkum Unni Dís Skaptadóttur og Önnu Wojtynska, en á núlíðandi misserum hafa þær verið á vettvangi víða um Ísland við rannsóknir á samlífi innflytjenda og heimamanna. Unnur Dís og Anna Wojtynska hafa nýlega komið við sögu í þessu hlaðvarpi í tengslum við þessa miklu rannsókn. Framlag Pamelu til þessa verkefnis snýst einkum um þætti sem tengjast tungumálinu, og hvernig aðfluttum gengur að læra íslensku og tengjast samfélaginu betur með því að ná valdi á málinu.
Pamela Innes fæddist 1963 í Chicago, en ólst upp í Omaha, Nebraska. Hún lauk BA námi 1986 frá Bryn Mawr College, í Bryn Mawr, Pennsylvaniu. Síðan lauk hún MA prófi 1992 frá University of Oklahoma, Norman, Oklahoma og doktorsgráðu lauk hún 1997 frá sama skóla. Doktorsritgerð hennar fjallaði um málsamfélög meðal Muskogee Stompdance fólksins. Eftir Pamelu liggur mikið magn greina og bókakafla, einkum um tungumálaþætti frumbyggjahópa í Norður Ameríku og samskipti þeirra við stjórnvöld og aðrar ráðastofnanir. Í seinni tíð hafa rannsóknir hennar í auknum mæli snúið að íslenskum aðstæðum, einkum stöðu innflytjenda hvað varðar íslenskukennslu þeirra, íslenskukunnáttu og aðgang þeirra að málsamfélagi heimamanna.