Raddir margbreytileikans – 28. þáttur: „Hóparnir sem ég hef unnið með hafna þjóðríkinu, landamærum og miðstýrðu valdi“

Eyrún Ólöf Sig­urð­ar­dóttir er fædd 1982 í Reykja­vík og alin upp í Hvera­gerði. Hún starf­aði í barna­starfi Reykja­vík­ur­borgar í nokkur ár (og þannig lenti hún í tóm­stunda­fræð­inni) og hefur líka unnið mikið með öldruð­um, bæði við aðhlynn­ingu og sem tóm­stunda­fræð­ing­ur. Eyrún kom stutt­lega við í ung­linga­starfi hjá borg­inni og hefur verið í gras­rót­ar­verk­efn­inu Stelpur rokka! frá 2015 (hún skrif­aði einmitt BA um kynja­skipt frí­tíma­starf). Svo hefur hún verið tals­vert á flakki um heim­inn, var í fjar­námi fyrst þegar hún byrj­aði í mann­fræð­inni og skrif­aði verk­efni á bóka­söfnum og kaffi­húsum hér og þar. Einnig hefur Eyrún unnið með No Border sam­tök­unum fyrir rétt­indum flótta­fólks og stundað annan aktí­visma. Hún er mikið nátt­úru­barn og komu fjalla­skál­arnir inn í líf hennar sem sum­ar­starf þegar hún var í mann­fræð­inni, eitt það besta, segir hún, sem hefur komið fyrir hana er að fá að dvelja á fjöllum í langan tíma í senn. Eyrún er aðjúnkt í tóm­stunda- og félags­mála­fræði við HÍ. Megin áherslur í fræðum Eyrúnar eru: orð­ræð­ur, stað­al­mynd­ir, fólks­flutn­ing­ar, vald og and­óf, aktí­vismi og anar­k­is­mi, tóm­stunda- og félags­mála­fræði.

Í þessu sam­tali er fjallað um orð­ræðu tengda fólki á flótta, m.a. útfrá starfi íslensku Land­helg­is­gæsl­unnar við landamæra­gæslu í Mið­jarð­ar­haf­inu, sem einnig fól í sér aðkomu að björgun flótta­fólks í sjáv­ar­háska, en Eyrún skrif­aði MA rit­gerð sína um það mál. Rætt er um her­væð­ingu örygg­is­mála og örygg­i­s­væð­ingu mann­úð­ar­mála og útvistun verk­efna því tengdu til einka­að­ila, og fleira í þeim dúr, þar sem hug­myndir um þjóð­ern­is­hyggju, yfir­burð­ar­hyggju og ras­isma koma við sögu.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023