Bókstafurinn B er viðfangið í þessum þriðja þætti Rófsins. Nína Richter fræðir hlustendur um hina minna þekktu notkunarmöguleika Bótox-efnisins alræmda, og Stefán Pálsson ferðast með okkur aftur í tímann og talar um kvikmyndina Barb Wire sem fagnar einmitt 20 ára afmæli sínu á árinu. Aðalleikkona Barb Wire, sjálf Pamela Anderson er að sjálfsögðu til umræðu í beinu framhaldi af því og eitt af stóru B-unum á hennar ferli, Baywatch þættirnir, eru teknir fyrir í leiðinni.
Stefán Pálsson og Nína Richter taka fyrir óvenjuleg málefni í óvenjulegum þætti sem er að vissu leyti óður til sjónvarpsþáttanna bresku QI, sem Stephen Fry gerði fræga. Hver þáttur hefur sinn bókstaf, sem er upphafsstafur þeirra málefna sem rædd eru í þættinum. Hvor þáttarstjórnandinn velur sér eitt málefni til að fjalla um en síðan tengjast málefnin einnig á óvæntan hátt. Þátturinn er í senn fróðlegur og fáránlegur, og geta hlutföllin þar á milli sveiflast til.
Nína og Stefán eru bæði á Twitter. Nína er @kisumamma og Stefán er @stebbip. Þátturinn hefur einni fengið sinn eigin reikning: @stafrofid. Ef fólk vill hafa samband, kvart yfir þáttastjórnendum eða koma með ábendingar um sniðug umfjöllunarefni þá er Facebook-síða þáttarins hér á facebook.com/rofidhladvarp.