Í þesum D-þætti Rófsins fræðumst við um hluti sem eru eftirlæti margra, en það eru demantar og dúllur. Stefán fræðir hlustendur um demantaiðnaðinn og snertir á minna þekktum staðreyndum um demanta. Nína talar um dúllur, krúttkúltúrinn og leitar leiða til að útskýra hvað sé krúttlegt og hvers vegna. Og líkt og vaninn er setja þau þetta alltsaman í samhengi við neyslumenningu og poppkúltúr. Sneisafullur þáttur af skemmtun.
Stefán Pálsson og Nína Richter taka fyrir óvenjuleg málefni í óvenjulegum þætti sem er að vissu leyti óður til sjónvarpsþáttanna bresku QI, sem Stephen Fry gerði fræga. Hver þáttur hefur sinn bókstaf, sem er upphafsstafur þeirra málefna sem rædd eru í þættinum. Hvor þáttarstjórnandinn velur sér eitt málefni til að fjalla um en síðan tengjast málefnin einnig á óvæntan hátt. Þátturinn er í senn fróðlegur og fáránlegur, og geta hlutföllin þar á milli sveiflast til.
Nína og Stefán eru bæði á Twitter. Nína er @kisumamma og Stefán er @stebbip. Þátturinn hefur einni fengið sinn eigin reikning: @stafrofid. Ef fólk vill hafa samband, kvart yfir þáttastjórnendum eða koma með ábendingar um sniðug umfjöllunarefni þá er Facebook-síða þáttarins hér á facebook.com/rofidhladvarp.