Hlutverk fjölmiðla í lýðræðislegu samfélagi hefur verið viðfangsefni félagsfræðinga um áratugaskeið. Flestir eru sammála um að frjálsir og óháðir fjölmiðlar séu grundvallar forsenda heilbrigðs lýðræðis. Þeir gegna mikilvægu hlutverki í því að borgarar séu meðvitaðir um það sem gerist í samfélagi þeirra, grannskoða og upplýsa um félagsleg, pólitísk og efnahagsleg ferli, og veita stjórnmálamönnum og peningavaldi aðhald. Fjölmiðlar eru – eða eiga að vera – spegill á samfélagið sem sýnir okkur sannleikann og blákaldar staðreyndir.
En hvernig er staðan á íslenskum fjölmiðlamarkaði? Eru íslenskir fjölmiðlar frjálsir og óháðir? Eru þeir sá spegill sem lýðræðið krefst? Kjartan Sveinsson ræddi við Ingibjörgu Dögg Kjartansdóttur, ritstjóra Stundarinnar, og Þórð Snæ Júlíusson, ritstjóra Kjarnans, um fjölmiðlalandslagið á Íslandi. Þau fóru yfir það hvernig hinir ýmsu þættir – svo sem rekstrarumhverfi lítilla og óháðra fjölmiðla; lögsóknir, lögbönn og hótanir; afskipti stjórnmálamanna; og samfélagsleg orðræða – hafa áhrif á getu þeirra til að standa undir lýðræðislegu hlutverki sínu.