Í hlaðvarpi vikunnar spjallar Sigrún við Jan Fritz en hún er prófessor í félagsfræði við Háskólann í Cincinatti í Bandaríkjunum og rannsóknarfræðimaður við Setur um félagsfræðilegar rannsóknir við Háskólann í Johannesburg í Suður Afríku.
Jan dvaldi hér á landi í haust sem Fulbright styrkþegi þar sem hún beindi sjónum að því hvort það að skylda fólk á eftirlaun á ákveðnum aldri sé mismunun sem byggir á aldri. Jan hefur einnig talað mikið fyrir klínískri félagsfræði en í henni eru kenningar og aðferðir félagsfræðinnar notaðar til að meta og leysa vandamál í samfélaginu.