Í hlaðvarpi vikunnar spjallar Sigrún við Mary Waters en hún er John Loeb-prófessor í félagsfræði og PVK-prófessor í listum og vísindum við Harvard-háskólann í Bandaríkjunum. Í rannsóknum sínum hefur hún meðal annars beint sjónum sínum að því hvernig innflytjendur og börn þeirra samlagast samfélaginu, stefnumótun í innflytjendamálum, og hamförum og afleiðingum þeirra.
Mary var einn af lykilfyrirlesurum á ráðstefnu Norrænna Félagsfræðinga sem fór fram í Reykjavík í ágúst síðastliðnum. Í þætti dagsins spjalla þær Sigrún um erindi hennar sem fjallaði um fólksflutninga á tímum loftslagsbreytinga sem og rannsóknarferil hennar almennt en hann spannar nokkra áratugi.